Samið um Herjólf
Mynd: Vegagerðin

Skipasmíðastöðin Crist S.A. hefur samþykkt tilboð Vegagerðarinnar um lokauppgjör vegna smíði Herjólfs og styttist því í að ferjan verði afhent.  Tilboðið hefur verið samþykkt en samningar hafa ekki verið undirritaðir en vænta má þess að það verði gert fljótlega. Tilboðið var sent skipasmíðastöðinni í morgun.

Vegagerðin hefur átt í stífum samningaviðræðum við skipasmíðastöðina frá því í lok febrúar þegar ljóst var að stöðin krefðist viðbótargreiðslu upp á  8,9 milljónir Evra. Sú krafa var að mati Vegagerðarinnar ekki í samræmi við efni samnings um smíði skipsins.  Í núverandi sáttagerð hefur Vegagerðin fallist á að greiða stöðinni viðbót við smíðaverð upp á 1,5 milljónir Evra auk þess að falla frá kröfu um tafabætur að andvirði 2 milljóna evra. Það er álit Vegagerðarinnar að með þessu sé fram komin lausn sem báðir aðilar geta við unað um leið og forðað verði  frekara tjóni vegna tafa á afhendingu skipsins.

Vegagerðin fagnar því að þessi óvenjulega deila er leyst og að það styttist að nýr Herjólfur komi til landsins.  Það er langþráð tilhlökkunarefni að fá nýtt skip í siglingar milli lands og Eyja og bæta þannig samgöngur á þessari mikilvægu siglingarleið.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.