Samskip átti lægsta tilboðið í rekstur Vestmannaeyjaferju en alls bárust átta tilboð í reksturinn, frá þremur aðilum. Tilboð Samskipa hljóðaði upp á rúmlega 602 milljónir króna. Eimskip lagði inn tilboð upp á 859 milljónir og tvö frávikstilboð upp á 839 og 858 milljónir króna. Þá buðu Sæferðir ehf. 903 milljónir í reksturinn og tvö frávikstilboð upp á 821 og 876 milljón króna. Áætlun Vegagerðarinnar var upp á um 831,8 milljónir en tilboð Samskipa er því 72,4% af þeirri upphæð.