Sanddæluskipið Perla sökk í Reykjavíkurhöfn
Sand­dælu­skipið Perla sökk í Reykja­vík­ur­höfn í morg­un en verið var að sjó­setja skipið eft­ir að hafa verið í slipp. Að sögn vakt­stjóra í slökkviliði höfuðborg­ar­svæðis­ins er búið að koma öll­um frá borði. Um mann­leg mis­tök er að ræða, seg­ir fram­kvæmda­stjóri Slipps­ins, Bjarni Thorodd­sen.
Svo virðist vera sem gleymst hafi að loka botn­lok­um seg­ir Bjarni í sam­tali við mbl.is en hann get­ur á þess­ari stundu ekki sagt nán­ar um það annað en að botn­lok­ur skips­ins hafi verið opn­ar og því sökk skipið.
Ekki er vitað hver staða skips­ins er nú, það er hvort vél þess hef­ur skemmst en það fer að fjara út um há­degið og síðdeg­is í dag verður hægt að kom­ast að því til að dæla sjó úr skip­inu. �?á kem­ur vænt­an­lega í ljós hvert tjónið er.
Perla er minnsta sand­dælu­skip Björg­un­ar og hef­ur það verið gert það út frá ár­inu 1979. D/�??S Perla er aðallega notuð til dýpk­ana, land­fyll­ing­ar og annarra skyldra verk­efna. Skipið ber allt að 300 m3 af efni og get­ur dælt efni upp af allt að 20 m dýpi, seg­ir á vef Björg­un­ar.
Mbl.is greindi frá og þar er að finna myndir.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.