Í Morgunblaðinu í dag er farið yfir frammistöðu landsliðs kvenna í handbolta sem kom heim með Forsetabikkarinn. Lenti í 25. sæti f 35 liðum og var marki frá því að komast í milliriðil. Okkar fólk, Sandra, Sunna, Díana Dögg fá góða dóma og Arnar sagður á réttri leið með liðið.
Umsögn Margunblaðsins:
Sandra Erlingsdóttir – Stjarnan í liðinu og sú besta á mótinu hjá íslenska liðinu. Skoraði mest og átti næstflestar stoðsendingar. Sandra er leikmaðurinn sem aðrir leikmenn leita að þegar það vantar töfrabrögð í sókninni. Ekki fullkomið mót hjá henni, þar sem hún missti boltann of oft og var stundum klaufsk, en það var mikil ábyrgð á herðum Eyjakonunnar.
Sunna Jónsdóttir – Fyrirliðinn er algjör leiðtogi og hélt liðsfélögum sínum á tánum. Lék vel í vörn og átti sína spretti í sókninni líka, þar sem hún leit stundum út fyrir að vera tíu árum yngri. Skilaði sínu hlutverki vel.
Díana Dögg Magnúsdóttir – Þarf að vera þolinmóð í landsliðstreyjunni því Thea er á undan henni í goggunarröðinni. Átti flottar innkomur og hefði stundum mátt spila meira. Var augljóslega staðráðin í að nýta tækifærin þegar þau gáfust.
Elísa Elíasdóttir – Þurfti að vera þolinmóð, þar sem hún var utan hóps og spilaði lítið framan af. Íslenska línuspilið gekk hins vegar betur þegar Eyjakonan spilaði og hún nýtti spiltímann vel. Er aðeins 19 ára gömul og á framtíðina fyrir sér í landsliðstreyjunni
Þjálfarinn Arnar Pétursson – Fyrsta stórmót Eyjamannsins. Það er óhætt að segja að liðið sé á réttri leið með Arnar sem skipstjóra. Ísland var hársbreidd frá því að komast í milliriðil eftir jafntefli við lið sem vann síðan tvo leiki í milliriðli. Var íslenska liðið því nálægt því að enda mun ofar á mótinu. Ísland er að nálgast lið sem hafa verið sterkari síðustu ár.
Þá var Arnar án fjölmargra reynslumikilla leikmanna og þurfti að vera snöggur að smíða saman lið úr yngri og reynsluminni leikmönnum og tókst nokkuð vel til. Hann þarf hins vegar að læra á þetta svið eins og aðrir leikmenn. Stundum var hann of vanafastur. Gekk ekki að spila Andreu í gang, þegar Elín Rósa var betri kostur á bekknum. Þá mátti hann gefa Þóreyju Önnu og Kötlu Maríu meiri spiltíma, þar sem þær nýttu sínar mínútur vel. Arnar komst nokkuð vel frá sínu á mótinu en ekki fullkomlega.
Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.
Mynd, Sandra og Díana Dögg á æfingu í Vestmannaeyjum.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst