Eyjakonan og leikmaður ÍBV, Sandra Erlingsdóttir, náði stórum áfanga með íslenska landsliðinu í handbolta, í leiknum gegn Færeyjum síðastliðinn miðvikudag, í undankeppni EM 2026. Hún varð sú fjórtánda til þess að skora 200 mörk fyrir íslenska landsliðið en hún skoraði sjö mörk í tapleiknum gegn Færeyjum, sex þeirra komu af vítapunktinum. Hún hefur nú skorað 200 mörk í 48 landsleikjum. Handbolti.is greinir frá þessu.
Sandra og stöllur hennar í íslenska landsliðinu mæta Portúgal í hreinum úrslitaleik um þriðja sætið í riðli fjögur, í undankeppni EM kvenna í handbolta á sunnudaginn kl. 16:00. Fyrir leikinn er Portúgal í þriðja sæti riðilsins með fjögur stig en Ísland í neðsta sætinu með tvö stig.
Markahæstu leikmenn íslenska landsliðsins í handbolta:
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir – 620 mörk
Hanna Guðrún Stefánsdóttir – 458 mörk
Þórey Rósa Stefánsdóttir – 413 mörk
Guðríður Guðjónsdóttir – 372 mörk
Karen Knútsdóttir – 371 mörk
Rakel Dögg Sigmarsdóttir – 304 mörk
Arna Sif Pálsdóttir – 282 mörk
Dagný Skúladóttir – 274 mörk
Halla María Helgadóttir – 273 mörk
Rut Arnfjörð Jónsdóttir – 249 mörk
Thea Imani Sturludóttir – 224 mörk
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir – 224 mörk
Stella Sigurðardóttir – 205 mörk
Sandra Erlingsdóttir – 200 mörk