Sannkölluð Eyjastemning í Ráðhúsinu

Fjöldi fólks var samakominn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur eftir hádegið þar sem dagskrá er í tilefni þess að Vestmannaeyjabær er heiðursgestur á Menningarnótt í Reykjavíkur. Tilefnið er 50 ára goslokaafmæli og langvarandi vinatengsl milli bæjarfélaganna.

Þar töluðu Íris bæjarstjóri Vestmanneyja og Dagur borgarstjóri Reykjavíkur.  ÁtVR sá um að skapa hina einu sönnu Eyjastemningu með söng og spili í stóru þjóðhátíðarhaldi og viðeigandi veitingum. Rauði krossinn, sem skipaði stórt hlutverk í björgunarstarfinu í Heimaeyjargosinu er á staðnum og ljósmyndir af liðnum þjóðhátíðum og lifandi myndir úr Heimaeyjargosinu rúlla á stórum skjám. Líka eru tvær stórar vikursúlur til að sýna á lifandi hátt hversu gríðarlegt öskumagn settist yfir Vestmannaeyjabæ.

Guðni Einarsson, okkar maður í Reykjavík tók myndirnar.

Dagskráin er eftirfarandi:

  • Kl. 12:30 Ráðhúsið opnar, létt lög í Dalnum
  • Kl. 13:00 Setning: Ávarp Dags. B. Eggertssonar, borgarstjóra Reykjavíkur og Írisar Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja
  • Kl. 13:15 Þorsteinn Gunnarsson, borgarritari og Védís Guðmundsdóttir, vefstjóri Reykjavíkurborgar, flytja Oddgeirslag
  • Kl. 13:20 Júníus Meyvant og hljómsveit flytja tónlist
  • Kl. 14:30 Elva Ósk Ólafsdóttir les upp úr dagbók móður sinnar, Rögnu Lísu Eyvindsdóttur, Góu
  • Kl. 14:45 Sæþór Vídó Þorbjörnsson og Kristín Halldórsdóttir flytja Eyjalög
  • Kl. 16:00 Friðrik Dór og Jón Jónsson flytja tónlistaratriði að hætti Þjóðhátíðar

Hafnartorg: Föstudagur til sunnudags, 18.-20. ágúst

Tvær sýningar verða í Hafnartorgi Gallery (næst Edition hótelinu), Til hafnar og Við gosið. Báðar tengjast sýningarnar eldgosinu á Heimaey árið 1973.

Til Hafnar

Opnun ljósmyndasýningarinnar Til hafnar, þar sem minnst er siglingar bátanna frá Vestmannaeyjum hina örlagaríku nótt er eldgosið á Heimaey hófst árið 1973, verður föstudaginn 18. ágúst kl. 16:00. Hvorki fyrr né síðar hafa Vestmannaeyingar verið fluttir yfir hafið líkt og gert var aðfararnótt 23. janúar 1973. Allt að 80 skip og áhafnir sigldu með tæplega fimm þúsund íbúa til hafnar í Þorlákshöfn undir drunum og birtu frá eldgosinu á Heimaey. Þessa nótt urðu bátarnir líflína bæjarbúa. Á sýningunni hverfist sjóndeildarhringurinn um bátana og endurskapar þá sýn sem við höfum af hafinu og siglingum.
Ítarleg lýsing á ljósmyndasýningu bæði á íslensku og ensku

Sýningarstjórar: Joe Keys og Vala Pálsdóttir

Sýningin Til hafnar verður opin á eftirfarandi tímum:

  • Föstudagurinn 18. ágúst kl. 16:00 – 18:00
  • Laugardagurinn 19. ágúst kl. 12:00 – 17:00
  • Sunnudagurinn 20. ágúst kl. 12:00 – 15:00

Við gosið

Ljósmyndasýningin Við gosið, sem sýnir ljósmyndir Sigurgeirs Jónassonar, verður í Hafnartorg Gallery. Sigurgeir myndaði gosið frá upphafi þess og þar til því lauk í júlí 1973. Um er að ræða valdar ljósmyndir Sigurgeirs af gosinu, þ.á.m. hina þekktu mynd af Landakirkju með eldhafið í baksýn. Það er vandasamt verk að velja úr safni Sigurgeirs, en eldgosamyndir hans hlaupa á þúsundum. Sýningin verður aðgengileg á opnunartímum Hafnartorgs Gallery fram til 3. september n.k.
Ítarleg lýsing á ljósmyndasýningu

Sýningarstjóri: Vala Pálsdóttir

Vestmannaeyjabær hvetur alla, bæði Vestmannaeyinga og aðra áhugasama, til að sækja viðburði um Vestmannaeyjar á hátíðinni og taka þátt í veisluhöldum og sýningum helgarinnar. Jafnframt eru gestir hvattir til að kynna sér götulokanir og bílastæðamál í miðborginni á vef Menningarnætur.

Nýjustu fréttir

Hvar er grafskipið? Hvar eru upplýsingarnar?
„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“
Elmar kom að 15 mörkum fyrir Nordhorn-Lingen
Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær – uppfært
Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
ÍBV tapaði á Hlíðarenda
Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.