Bæjarstjórn Vestmannaeyja vísaði málinu um listaverk í tilefni 50 ára gosloka til bæjarráðs í kjölfar tillögu sem kom fram frá fulltrúum D lista þess efnis að málið færi í íbúakosningu að lokinni ítarlegri kynningu á þeim hluta listaverksins sem snýr að inngripi í náttúruna, m.a. göngustígagerð í Eldfelli.
Fram kemur í fundargerð bæjarráðs að Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar hafi verið tengiliður við samstarfsaðila um listaverkið og skilaði drögum að minnisblaði til bæjarráðs eftir að hafa rætt við samstarfsaðilana um stöðuna. Niðurstaða í drögunum er sú að samþykki bæjarstjórn að vísa málinu í íbúakosningu á þessu stigi jafngildi það ákvörðun um að hætta við verkið.
Vilja fá að sjá útlit verksins og vita hvar umframkostnaður lendi
Haft er eftir Eyþóri Harðarsyni bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Morgunblaðinu í dag að í ljósi umræðu um inngrip í náttúru Eldfells með göngustígagerð vilji minnihlutinn fyrst og fremst vita almennilega hvernig listaverkið verði útfært í umhverfinu. Hann segir að mörgum spurningum sé ósvarað en svör ættu að vera sjálfsögð.
„Við veltum líka fyrir okkur kostnaðinum; en skiptingin á 120 milljónum króna átti að vera sú að bærinn greiddi 50 milljónir og ríkið 70 milljónir. En ljóst er að sá kostnaður yrði umtalsvert meiri og óljóst á hverjum sú upphæð lendir. Svo viljum við líka sjá útlit verksins, okkur dugar ekki að fá aðeins að vita að Ólafur Elíasson sé hönnuður, þótt stórt nafn sé,“ segir Eyþór.
Málið enn á byrjunarstigi í febrúar
Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar sem fundar seinna í dag. Endanlegt minnisblað mun liggja fyrir þar.
Hér að neðan má sjá fyrri umfjallanir Eyjar.net, en fram kom á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja um miðjan febrúar að málið hafi dregist og að það sé enn á byrjunarstigi. Þá á málið eftir að fara í gegnum skipulagsferli áður en endanlegar ákvarðanir verði teknar.
https://eyjar.net/minnisvardinn-a-eldfelli-mikid-mannvirki/
https://eyjar.net/vilja-ibuakosningu-um-minnisvarda/
https://eyjar.net/malid-a-byrjunarstigi/
https://eyjar.net/2022-12-14-drog-ad-breyttu-adalskipulagi-vegna-minnisvarda-kynnt-skipulagsradi/
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst