Segist hafa stundað sölu og dreifingu undanfarna mánuði
Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á um hálft kíló af maríhúana við húsleit í heimahúsi í Vestmannaeyjum í gærkvöldi eftir að hafa fengið upplýsingar um að húsráðandi væri viðriðnn sölu fíkniefna. Einnig var lagt hald á áhöld til sölu og neyslu fíkniefna auk þess sem nokkuð magn af peningum voru haldlagðir. Við leitina naut lögreglan aðstoðar fíkniefnaleitarhundsins Lunu. Tveir karlmenn á fimmtugsaldri, annar þeirra húsráðandinn, voru handteknir vegna rannsóknar málsins og voru vistaðir í fangageymslu. Húsráðandinn viðurkenndi að vera eigandi efnanna og að hafa stundað sölu og dreifingu á fíkniefnum í Vestmannaeyjum á undanförnum mánuðum. Báðir þessir menn hafa áður komið við sögu lögreglu vegna mála sem tengjast fíkniefnum. Málið telst að mestu upplýst.

Nýjustu fréttir

Hópferð á undanúrslitaleikinn hjá stelpunum á morgun
Fagmönnun langt undir lágmarki á Hraunbúðum
Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð
Vörubakarí opnaði í morgun
Herjólfur III í haffærisskoðun um mánaðamótin – dýpkun hefst í byrjun ágúst
Hafnaði nær öllum verkefnum í júlí til að undirbúa Brekkusönginn
Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.