Segja hugmyndir um skattahækkanir óráð fyrir alla þjóðina
26. mars, 2024
saf_adalfundur_2024-2_min
Frá aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar. Aðsend mynd.

Samkeppnishæfar útflutningsgreinar eru grundvöllurinn að lífskjörum þjóðarinnar. Þar gegnir ferðaþjónusta lykilhlutverki, en greinin hefur umbylt efnahag þjóðarinnar á undanförnum 15 árum. Útflutningsverðmæti ferðaþjónustu voru 598 milljarðar króna á síðasta ári og greinin stóð undir 32% af heildarútflutningi vöru og þjónustu.

Í ályktun aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar sem haldinn var á dögunum segir að mikilvægt sé að stjórnvöld viðurkenni í verki mikilvægi þess að varðveita og styrkja samkeppnishæfni ferðaþjónustu og rekstrarumhverfi ferðaþjónustufyrirtækja.

Skattspor ferðaþjónustu var 152 milljarðar króna árið 2022, og lætur því nærri að skatttekjur af ferðaþjónustu hafi fjármagnað að fullu öll rekstrarframlög ríkisins til sjúkrahúsþjónustu og löggæslu í landinu það ár. Þegar er ljóst er að skattsporið verður hærra fyrir árið 2023.

Ef hið opinbera vill auknar tekjur af greininni í ríkiskassann ættu stjórnvöld að búa ferðaþjónustunni gott umhverfi til rekstrar, með því að auka samkeppnishæfni og einfalda regluverk, skatta og gjöld. Því miður hafa ákvarðanir stjórnvalda síðasta árið fremur einkennst af hinu gagnstæða.

Ferðaþjónusta er atvinnugrein sem starfar langt fram í tímann. Fyrirsjáanleiki í rekstrarumhverfi og skattlagningu er því grundvallaratriði varðandi bætta samkeppnishæfni greinarinnar og aukna verðmætasköpun hennar fyrir samfélagið allt. Skatta- og gjaldahækkanir með örstuttum fyrirvara, eins og þær sem stjórnvöld gerðu síðastliðið haust í tengslum við fjárlög, eru óásættanleg með öllu, valda beinum skaða á starfsumhverfi og samkeppnishæfni greinarinnar og vinna með beinum hætti gegn stefnu og markmiðum stjórnvalda sjálfra. Samtök ferðaþjónustunnar gagnrýna slík vinnubrögð harðlega.

Hækkun VSK á ferðaþjónustu er þjóðhagslegt óráð

Undanfarna mánuði hafa stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar viðrað hugmyndir um að hækka virðisaukaskattshlutfall ferðaþjónustu í 24%. Almenn greining á grundvelli viðtekinnar þjóðhagfræði, sem SAF hefur látið vinna, bendir til þess að slík hækkun myndi almennt hækka verðlag og þar með verðbólgu á viðkomandi ári, lækka veltu í ferðaþjónustu, veikja samkeppnishæfni hennar, lækka verga landsframleiðslu og auka skatttekjur mun minna en sem nemur hækkun virðisaukaskattshlutfallsins, og meira að segja ef til vill lækka þær miðað við sem orðið hefði við óbreytt skatthlutfall.

Athugun á reynslu annarra þjóða af hliðstæðum skattahækkunum staðfesta ofangreindar niðurstöður í öllum aðalatriðum. Þær draga úr umsvifum og lækka á endanum skatttekjur hins opinbera. Greiningin sýnir að slíkar hugmyndir eru fullkomið óráð fyrir alla þjóðina, nema ef vera skyldi að ætlun stjórnvalda sé beinlínis að eyðileggja samkeppnishæfni ferðaþjónustu og draga úr landsframleiðslu til framtíðar.

Ef okkur Íslendingum er alvara með að efla ferðaþjónustu sem okkar helstu útflutningsatvinnugrein og burðarstólpa í verðmætasköpun þjóðarinnar og lífskjarasókn, þá þarf samkeppnishæfni áfangastaðarins, samkeppnishæfni ferðaþjónusta, alltaf að vera leiðarstef í ákvarðanatöku stjórnvalda, segir í ályktun aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar.

Facebook
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
14. tbl. 2024
14. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst