Seiglusigur gegn FH í gærkvöldi
Hákon Daði Styrmisson í leik með ÍBV gegn FH.

Srákarnir í meistaraflokki ÍBV í handbolta tóku á móti FH í hörku leik í 19. umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi.

Eyjamenn voru lengi af stað og fór svo að FH skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins áður en ÍBV komst á blað. Þrátt fyrir að vera einum manni færri stóran hluta af fyrri hálfleiknum leiddu gestirnir því 14-17 þegar gengið var til leikhlés.

Heimamenn komu hinsvegar tvíelfdir til seinni hálfleiks og unnu jafnt og þétt niður forskotið. Liðin skiptust þá á að skora og var það ekki fyrr en á 45. mínútu að Eyjamenn náðu að jafna. FH tók þó forystuna aftur þar til 5 mínútur voru til leiksloka er ÍBV jafnaði aftur. Þegar tvær mínútur voru eftir var allt í járnum 29-29. Með góðum vörslum frá Birni Viðari Björnssyni í marki ÍBV tókst þeim að tryggja sér tveggja marka sigur 31-29.

Markahæstur í liði ÍBV var Hákon Daði Styrmisson með 13 mörk. Aðrir markaskorarar voru Dagur Arnarsson – 4, Elliði Snær Viðarsson – 4, Fannar Þór Friðgeirsson – 3, Kristján Örn Kristjánsson – 3, Kári Kristján Kristjánsson – 2, Daníel Örn Griffin – 1 og Gabríel Martinez – 1. Björn Viðar varði níu skot í markinu.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.