Sel­foss skoraði 38 mörk gegn ÍBV
Sel­fyss­ing­ar unnu hreint út ótrú­leg­an sig­ur á ÍBV í Olís-deild karla í hand­bolta í (gær)kvöld. Loka­töl­ur í Valla­skóla urðu 38:32. Mbl.is greindi frá.
Eyja­menn höfðu frum­kvæðið fram­an af leikn­um og leiddu 7:9 þegar þrett­án mín­út­ur voru liðnar. �?á kom gott áhlaup hjá heima­mönn­um sem skoruðu níu mörk gegn þrem­ur á tíu mín­útna kafla og breyttu stöðunni í 16:12. For­skot Sel­foss var fimm mörk í hálfleik, 20:15.
Sel­fyss­ing­ar slökuðu ekk­ert á klónni í upp­hafi seinni hálfleiks og náðu níu marka for­skoti þegar rúm­ar tíu mín­út­ur voru liðnar. �?á tók Theo­dór Sig­ur­björns­son til sinna ráða og raðaði inn mörk­un­um fyr­ir Eyja­menn. �?trú­leg sveifla til baka og ÍBV jafnaði, 32:32, þegar rúm­ar fimm mín­út­ur voru eft­ir. �?á var kraft­ur Eyja­manna á þrot­um. Helgi Hlyns­son skellti í lás í Sel­foss­mark­inu og heima­menn skoruðu síðustu sex mörk leiks­ins.
Guðni Ingvars­son skoraði 13 mörk fyr­ir Sel­fyss­inga og Ein­ar Sverris­son 8, en hann átti ófá­ar stoðsend­ing­ar inn á Guðna á lín­unni. Helgi Hlyns­son varði 21 skot í marki Sel­foss.
Theo­dór Sig­ur­björns­son skoraði 13/�??4 mörk fyr­ir ÍBV, þar af tíu í seinni hálfleik. Grét­ar Eyþórs­son kom næst­ur hon­um með 6 mörk. Andri Ísak Sig­fús­son varði 9 skot fyr­ir ÍBV.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.