Selfoss kærir framkvæmd leiks Fram og ÍBV
Handknattleiksdeild Selfoss hefur kært framkvæmd leiks Fram og ÍBV í Olísdeild karla sem fram fór síðastliðinn miðvikudag. ÍBV sigraði með einu marki og tryggði sér þar með deildarmeistaratitilinn. Af upptökum sem birst hafa af leiknum kemur í ljós að ÍBV var með of marga leikmenn inni á vellinum á síðustu sekúndum leiksins. www.sunnlenska.is greindi frá.
�?órir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss, staðfesti í samtali við sunnlenska.is að stjórn deildarinnar hafi ákveðið á fundi sínum í gærkvöldi að senda inn kæru.
�??Samkvæmt leikreglum HSÍ er ljóst að refsing við broti sem þessu er brottvísun leikmanns og vítakast til handa mótherja. �?rslit leiksins ráða því hvort ÍBV eða Umf. Selfoss séu deildarmeistarar og varðar því rétt framkvæmd leiksins miklu fyrir bæði félögin,�?? sagði �?órir í samtali við sunnlenska.is.
Selfyssingar gera kröfu um að sá leiktími sem eftir var af leik Fram og ÍBV þegar atvikið kom upp verði endurtekinn, en til vara að leikurinn verði spilaður aftur í heild sinni.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.