�?egar �?mar Garðarsson ræddi við ráðherrann á föstudaginn komst hann að því að Sturla þekkir vel til í Eyjum, starfaði m.a. fyrir Viðlagasjóð í gosinu og hann hefur skarpa sýn á þarfir Vestmannaeyja í samgöngum. Nú liggur samgönguáætlun fyrir Alþingi þar sem gert er ráð fyrir fimm milljörðum til hafnar í Bakkafjöru og ferju. Sjálfur bíður hann eftir lokaniðurstöðum sérfræðinga til að taka endanlega ákvörðun en ekkert liggur annað fyrir en að þær verði jákvæðar. Og þá er hann til í slaginn.
Nægar rannsóknir fyrir hendi
Krafa �?gisdyra, sem sjá göng sem fyrsta kost í samgöngum Vestmannaeyja, og reyndar fleiri er að gerðar verði frekari rannsóknir sem eiga að kosta 20, 30 eða 40 milljónir. Er þetta til skoðunar hjá þér eða í ráðuneytinu?
�?Mínir ráðgjafar telja að það sé búið að rannsaka nægjanlega mikið til að hægt sé að leggja mat á kostnað við jarðgöng og jarðfræðilegar aðstæður og þeir sjá ekki ástæðu til að fara í frekari rannsóknir á þessu stigi. Aftur á móti, ef svo ólíklega færi að ákvörðun yrði tekin um að grafa göng þarf að fara í rannsóknir sem kosta ekki tugi heldur hundruð milljóna til að kortleggja framkvæmdina. Við þekkjum það úr Hvalfjarðargöngunum að fyrst fór fram margs konar kostnaðarsöm rannsóknarvinna sem byggðist á að undirbúa framkvæmdina þar en aðstæður voru allt aðrar þar.�?
Sturla sagðist aftur á móti hafa fengið ályktun frá bæjarstjórninni þar sem þess var óskað að möguleiki á göngum yrði rannsakaður frekar. �?En ég vil að menn átti sig á því að við höfum mjög takmarkaðan tíma vegna Herjólfs sem fær ekki að sigla eftir 2010. Núna er árið 2007, svo kemur 2008, 2009 og 2010. Við höfum þrjú ár upp á að hlaupa til að taka ákvarðanir og framkvæma þetta stórvirki. �?annig að við erum í mjög þröngri stöðu en verði samgönguáætlun samþykkt hef ég sagt að við munum halda áfram á fullu. �?g bíð reyndar eftir skýrslu sérfræðinganna um að þetta sé mögulegt en ekkert hefur komið fram sem segir að þetta sé ekki hægt.�?
Í ályktuninni sem Sturla nefnir leggur bæjarstjórn til við stjórnvöld að óháðu ráðgjafafyrirtæki á sviði jarðvegsrannsókna og jarðgangagerðar verði falið að leggja mat á þörf fyrir frekari rannsóknir vegna jarðganga milli lands og Eyja og væntanlegum kostnaði af þeim.
�?�?g hef ákveðið að verða við þessum óskum Eyjamanna. Fá óháða aðila til að fara ofan í þær rannsóknir sem liggja fyrir, leggja mat á þær og kostnað við hugsanleg jarðgöng. Menn geta þá séð svart á hvítu hvert mat utanaðkomandi aðila er. �?annig að rétt eina ferðina verð ég við óskum bæjaryfirvalda og vænti þess að menn meti það og gefi okkur vinnufrið. �?etta hef ég gert í samráði við þingmenn Suðurkjördæmis og að sjálfsögðu vegamálastjóra. Vegamálastjóri og allt hans fólk hefur unnið vel að þessum málum. Á stundum hefur mér fundist að umræður um stofnanir ráðuneytisins séu vægast sagt ómálefnalegar.�?
Áttu þá við í Vestmannaeyjum eða almennt?
�?Í Vestmannaeyjum. Menn verða að átta sig á því að starfsmönnum Vegagerðarinnar gengur ekkert nema gott til. �?eir vinna eftir ákvörðunum stjórnmálamanna og við höfum á að skipa hópi velmenntaðra og reyndra sérfræðinga á sviði samgöngumála. �?g er mjög heppinn hvað það varðar.�?
Viðtalið birtist í heild sinni í Fréttum á morgun.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst