Sérstakir tímar í COVID-19 skimun fyrir einstaklinga í sóttkví

Boðið verður upp á sérstaka COVID-19 skimun fyrir alla einstaklinga sem eru í sóttkví í Vestmannaeyjum eða eru að útskrifast úr henni.

Sérstakir tímar eru í boði fyrir þennan hóp á morgun. Flestir í sóttkví hafa fengið sms varðandi þetta. Ef einstaklingar í sóttkví hafa þegar pantað tíma á föstudag eða laugardag þá eru viðkomandi vinsamlegast beðnir um að bóka sig frekar á morgun fimmtudag. Ef einhverjar spurningar eru varðandi fyrirkomulag hjá þeim sem eru í sóttkví er hægt að senda fyrirspurn á eyjaklukk@hsu.is

Þeir sem eru í sóttkví mega fara á bíl í sýnatökuna, en ath. ekki í sama bíl og einstaklingar sem eru utan sóttkvíar.

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.