Séstey / Hverfey í Surtseyjarstofu

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Séstey / Hverfey í Surtseyjarstofu, Vestmannaeyjum, laugardaginn 18. júní milli kl. 17.00 og 18.30 með verkum eftir Þorgerði Ólafsdóttur. Klukkan 15:30 munu Þorgerður og Magnús Freyr Sigurkarlsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, leiða gesti um sýninguna.

Á sýningunni sýnir Þorgerður ný listaverk og aðra muni samhliða fastasýningu Umhverfisstofnunnar í Surtseyjarstofu. Sýningin er unnin í samstarfi við Umhverfisstofnun sem hefur annast fastasýningu um myndun og mótun Surtseyjar frá árinu 2014 í Eldheimum, Vestmannaeyjum.

Séstey/Hverfey er hluti af stærra verkefni og listrannsókn sem Þorgerður hefur unnið að undanfarið ár í tengslum við Surtsey undir yfirskriftinni Island Fiction og lýkur með útgáfu nýs bókverks árið 2023, á 60 ára gosafmæli Surtseyjar.  Fyrir verkefnið sitt sótti Þorgerður um rannsóknarleyfi til Surtseyjar og fór með jarðfræðileiðangrinum út í eyju sumarið 2021. Á meðan að dvöl hennar stóð skoðaði Þorgerður meðal annars rekaefni frá Surtsey og fótspor varðveitt í móbergi í samhengi við minjar og táknmyndir mannaldar.

Þorgerður er jafnframt í samstarfi við Umhverfisstofnun að vinna frekar með sjórekið plast og aðrar mannvistarleifar sem hreinsað verður úr eyjunni næstu árin.

Í nýlegum verkum veltir Þorgerður upp hugmyndum hvernig nýr staður verður til í menningarlegum skilningi og gerir tilraun til að kortleggja breytileika Surtseyjar út frá náttúrulegum ferlum og þeim sem við mannfólkið ýtum af stað.

,,Sökum friðunar og staðsetningar hefur komið í ljós hvað Surtsey er kjörinn mælikvarði á áhrif loftslagsbreytinga og magn plasts í umhverfinu. Í ljósmyndaseríunni Sögumenn (Storytellers) er rýnt í sögu framandsteina og sjórekins plasts. Talið er að framandsteinar sem fundist hafa á Surtsey, hafi komið með ísjökum frá Grænlandi, sokkið svo niður á hafsbotn og síðar komið upp á yfirborðið í eldgosinu sem myndaði Surtsey. Í nokkur ár hefur Umhverfisstofnun farið fyrir hreinsun á sjóreknu plasti og öðru rekaefni á Surtsey sem skolar á land. Hægt er að bera kennsl á flesta hlutina og áttað sig á því hvert fyrra hlutverk þeirra var. Aðrir hafa ferðast óravegu og umbreyst svo mikið og mótast af sögu sinni að þeir eru óþekkjanlegir í dag. 

Þessir ólíku munir, framandsteinar og plast, eiga það sameiginlegt að vera samansafn af því umhverfi sem þeir hafa ferðast um þar til þeir enduðu báðir á Surtsey. Í verki sínu nálgast Þorgerður þessa muni af forvitni og spyr – ekki hvað þeir voru, heldur hvað þeir eru í dag – og hvaða sögu þeir hafa að segja.”

Sýningarnar í Surtseyjarstofu eru opnar samhliða opnunartíma Eldheima (Suðurvegur / Gerðisbraut 10, Vestmannaeyjar), milli kl. 11:00 – 17:00, alla daga.

 

 

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.