Setja á fót menningar- og listasjóð
Ráðhús_nær_IMG_5046
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Umgjörð og reglur fyrir verkefnið “Viltu hafa áhrif“ hefur verið tekið til endurskoðunar hjá bæjaryfirvöldum. Ástæða þess er að sjóðurinn hefur þróast og breyst frá upphaflegum markmiðum í gegnum árin. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs.

Þar er einnig greint frá því að Drífa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs hafi farið yfir verkefnin sem hafa verið styrkt undanfarin ár. Allt eru þetta fjölbreytt og áhugaverð verkefni en ná yfir vítt svið, s.s menningu, listir, íþróttir og tómstundir. Sjóðurinn þyrfti að skilgreina betur hvers konar verkefni eru styrkt. Ekki er um að ræða aukið fjármagn eða nýjan sjóð heldur breytingu á formi.

Bæjarráð samþykkti samhljóða að gera breytingar með því að setja á fót menningar- og listasjóð sem bæjarráð fer með og skoða tilfærslu á fjármagni fyrir verkefni tengd íþróttum- og tómstundum sem fjölskyldu- og tómstundaráð mun úthluta. Vinna þarf drög að reglum og leggja fyrir bæjarráð á næsta fundi.

Nýjustu fréttir

ÍBV og Macron í samstarf
Nýtt skólaár hafið hjá Grunnskóla Vestmannaeyja
Fimm ástæður fyrir JÁ-inu mínu
Stefnir í stærsta ágústmánuðinn í botnfiskvinnslu í langan tíma
Skólasetning GRV fór fram í morgun
Rúmlega tíundi hver hefur kosið utan kjörfundar
Ný strætóáætlun til og frá Landeyjahöfn
Vetrarstarf ÍBV hefst í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.