Settu tvo í farbann í Eyjum og skemmdu 20 tölvur við húsleit
Yanina Vygrebalina og Ivan Zhadnov, sem reka lítið gagnaver í Vestmannaeyjum, Datafarm, íhuga að stefna íslenska ríkinu og krefjast bóta vegna 20 tölva sem eyðilögðust þegar lögreglan á Suðurnesjum braust inn í gagnaver þeirra í lok febrúar. Fréttablaðið greinir frá.
Kemur fram að brotist hafi verið inn í annan af tveimur gámum þeirra og eftir það hafi kælikerfi gámsins hætta að virka með þeim afleiðingum að tölvurnar ofhitnuðu. Ivan segir erfitt að meta tjónið en verðið á þeim hafi rokið upp samhliða aukinni eftirspurn eftir Bitcoin.
�??Við vorum í fríi í Taílandi þegar þetta gerðist og starfsmennirnir okkar tveir í Moskvu,�?? segir Yanina í samtali við Fréttablaðið en starfsmennirnir tveir flugu rakleiðis til Íslands til að kanna málið.
Voru mennirnir í kjölfarið yfirheyrðir á lögreglustöðinni í Vestmannaeyjum og haldið þar í sólarhring, vegna gruns um þjófnað í tengslum við stuld á tölvum í gagnaverum á Reykjanesi. Var þeim sleppt sl. föstudagskvöld og tilkynnt að þeim væri ekki heimilt að yfirgefa Vestmannaeyjar næstu átta vikurnar.
Nánari umfjöllun má finna á vef Fréttablaðsins.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.