Sex ferðir í Landeyjahöfn á morgun
Herjólfur í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Herjólfur ohf. hefur birt nýja tilkynningu um siglingaráætlun næstu daga. Samkvæmt henni verður siglt sex ferðir til Landeyjahafnar á morgun, fimmtudaginn 14. maí.

Brottfarir frá Vestmannaeyjum verða klukkan 07:00, 09:30, 12:00, 14:30, 17:00 og 19:30. Frá Landeyjahöfn verður siglt klukkan 08:15, 10:45, 13:15, 15:45, 18:15 og 20:45.

Á föstudag hefur áætlun aðeins verið gefin út fyrir fyrri hluta dags að svo stöddu. Þá verður brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00 og 09:30, en frá Landeyjahöfn klukkan 08:15 og 10:45. Nánari upplýsingar um siglingar síðar á föstudeginum verða birtar á föstudagsmorgun.

Þá segir í tilkynningu Herjólfs að enn sé unnið að því að færa gagnagrunn bókunarkerfis félagsins yfir. Farþegar geta bókað ferðir með því að hafa samband við skrifstofu Herjólfs í síma 481-2800.

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.