Sex fíkniefnamál og einn ölvunarakstur
Lögreglan og sýslumaður við setningu Þjóðhátíðar í gær. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Setning Þjóðhátíðar fór fram í blíðskaparveðri í Herjólfsdal í gær.  Við setningu Þjóðhátíðar blessaði Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, hátíðina. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum fór hátíðin vel af stað og virðast gestir komnir til þess að skemmta sér og öðrum.

Lögreglan heldur sem fyrr úti öflugu fíkniefnaeftirliti á Þjóðhátíð. Sex minniháttar fíkniefnamál komu upp í gær og einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur.

Nokkrum einstaklingum var jafnframt veitt aðstoð vegna ölvunar. Þá sótti þyrla Landhelgisgæslunnar einstakling sem hafði fallið í fjalllendi í Vestmannaeyjum. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.