Sextán nemendur útskrifast frá FÍV
Utskrift 2025 Fiv DSC0088
Útskriftarnemar FÍV á vorönn 2025. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Framhaldsskólanum var slitið í dag og útskrifuðust sextán nemar af fjórum mismunandi brautum. Um 250 nemendur voru skráðir til náms á 12 brautum og um 90 áfangar voru kenndir.

Fram kom í máli Thelmu Bjarkar Gísladóttur, aðstoðarskólameistara að aðsókn í iðn- og starfsnám sé mikil og miðað við umsóknartölur í gær er rafmagnið vinsælast að þessu sinni en einnig er bóknámið að heilla aftur. Svo mögulega fer að komast á jafnvægi milli bóknáms og verknáms.

„Við bindum miklar vonir við að geta á næstu árum útskrifað rafvirkja, bætt C-stiginu við í vélstjórnarnáminu, farið af stað með brautir eins og skipstjórn, leikskólaliðann, stuðningsfulltrúann og ef þið hafð fleiri hugmyndir eða eruð með óskir þá endilega látið okkur vita,“ sagði Thelma m.a.

Hér að neðan má sjá lista yfir útskriftarnemendur og þar fyrir neðan er farið yfir þá sem hlutu heillaóskir og viðurkenningar. Nánar verður fjallað um útskriftina á næstu dögum hér á síðunni.

Þau sem útskrifuðust eru:

Berta Ómarsdóttir Stúdentsbraut-félagsvísindalína FV
Birkir Björnsson Stúdentsbraut – Íþróttasvið STB-ÍÞ
Egill Oddgeir Stefánsson Stúdentsbraut-náttúruvísindalína NV
Embla Harðardóttir Stúdentsbraut-náttúruvísindalína NV
Herdís Eiríksdóttir Stúdentsbraut-félagsvísindalína FV
Íva Brá Guðmundsdóttir Stúdentsbraut-félagsvísindalína FV
Nökkvi Guðmundsson Stúdentsbraut – Opin lína ST1-O
Rakel Perla Gústafsdóttir Stúdentsbraut-náttúruvísindalína NV
Sara Sindradóttir Stúdentsbraut-náttúruvísindalína NV
Sveinbjörg Ósk Hauksdóttir Stúdentsbraut – Opin lína ST1-O
Willum Jörgen Andersen Starfsbraut STB4
Þorgeir Oddfríðarson Vélstjórn B-stig og Viðbótarnám til stúdentsprófs

 

Ekki viðstödd athöfn:

Hlín Albertsdóttir Sjúkraliðabraut SJ
Inga Kolbrún Ívarsdóttir Sjúkraliðabraut SJ
Sunna Daðadóttir Stúdentsbraut-félagsvísindalína FV
Sæþór Steinarsson Vélstjórn B-stig og Viðbótarnám til stúdentsprófs

 

Heillaóskir og viðurkenningar

Íþróttaakademía ÍBV og FÍV:

Sigríður Inga Kristmannsdóttir ávarpaði útskriftarnemendur og gesti fyrir hönd ÍBV íþróttafélags og veitti barmmerki félagsins þeim sem klárað hafa fjórar annir eða fleiri í akademíunni:

  • Birkir Björnsson – 4 annir
  • Egill Oddgeir Stefánsson – 4 annir
  • Embla Harðardóttir – 4 annir
  • Nökkvi Guðmundsson – 4 annir
  • Rakel Perla Gústafsdóttir – 4 annir

Drífandi stéttarfélag veitti viðurkenningu fyrir félagsstörf:

  • Birkir Björnsson
  • Embla Harðardóttir
  • Nökkvi Guðmundsson
  • Rakel Perla Gústafsdóttir

 

Danska sendiráðið veitti viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku

  • Embla Harðardóttir og Sara Sindradóttir

 

Skólinn veitti viðurkenningu fyrir góðan árangur í spænsku

  • Embla Harðardóttir

 

Skólinn veitti viðurkenningu fyrir góðan árangur í íslensku

  • Sara Sindradóttir

 

Viðurkenning fyrir góðan árangur í listgreinum

  • Willum Jörgen Andersen

 

Menntaverðlaun Háskóla Íslands eru veitt framhaldsskólanemum sem sýnt hafa framúrskarandi árangur á stúdentsprófi.

  • Embla Harðardóttir

 

Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík eru veitt fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi.

  • Sara Sindradóttir

 

Skólinn veitti viðurkenningu fyrir mjög góðan heildarárangur í námi.

  • Embla Harðardóttir 8,93
  • Sara Sindradóttir 8,94

Nýjustu fréttir

Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.