Síðdegisferð Herjólfs til Þorlákshafnar
Herjólfur_2023_ÓPF_DSC_1763
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Herjólfur siglir eina ferð á háflóði til Landeyjahafnar í dag, laugardag. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Brottför frá Landeyjahöfn kl. 10:45.

Gert er ráð fyrir hækkandi ölduhæð þegar líður á daginn, ásamt vindi. Siglir Herjólfur því til Þorlákshafnar seinni ferð dagsins. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 19:45. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Hvað varðar siglingar fyrir sunnudag, verður gefin úr tilkynning fyrir kl. 06:00 þann morgun.

Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt ða skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni.

Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Nýjustu fréttir

Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.