Herjólfur ohf. hefur staðfest brottför til Þorlákshafnar seinni partinn. Brottför frá Vestmannaeyjum kl 16:00 (áður 17:00). Brottför frá Þorlákshöfn kl 19:45 (áður 20:45).
Laugardagurinn 16.11.24 og þar til annað verður tilkynnt:
Herjólfur stefnir til Landeyjahafnar samkvæmt almennri áætlun þar til annað verður tilkynnt.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 09:30, 12:00, 14:30, 17:00, 19:30, 22:00
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 08:15, 10:45, 13:15, 15:45, 18:15, 20:45, 23:15
Samkvæmt veðurspá er gott útlit fyrir siglinga til Landeyjahafnar næstu daga en ef gera þarf breytingu á áætlun verður það gefið út um leið og það liggur fyrir. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst