Sigmundi Davíð sleppt út á haf
Í dag var Sigmundi Davíð gefið frelsi en hann flaug beinustu leið á haf út. Nei hér er ekki átt við forsætisráðherra heldur fýlsungann sem fékk þetta fína nafn. Sagt er frá fýlnum á vef Sæheima.
�??Um miðjan júlí komu ferðamenn með lítinn fýlsunga á safnið sem þeir björguðu úr hundskjafti. Hann var ósköp lítill og aumur og þótti okkur hann ekki vera líklegur til að lifa. Hann tók þó fljótlega æti og stækkaði og fitnaði heil ósköp næstu vikurnar. Hann virtist skynja að við vorum ekki óvinir heldur bjargvættir og reyndi hann aldrei að æla á fólk eins og fýla er siður. Hann var einstaklega ljúfur og skemmtilegur fugl og varð hann hændur að fólki og var í miklu uppáhaldi hjá bæði gestum og starfsfólki safnsins,�?? segir á síðunni.
Farið var með Sigmund Davíð inn á Eiði þar sem fjöldi fýla heldur sig jafnan enda nægt æti að hafa. Sigmundur Davíð var frelsinu feginn og flaug á haf út. �??Hafði hann farið á nokkrar sundæfingar á safninu og var því nokkuð öruggur með sig á sjónum. �?að var nokkur eftirsjá hjá starfsfólkinu enda skemmtilegur fugl þarna á ferðinni.�??

Nýjustu fréttir

Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.