Sigmundur Davíð: Kæru Eyjamenn
Á morgunn laugardag 28. október verður kosið til alþingis íslendinga. Miðflokkurinn sem stofnaður var þann 8. október s.l. býður nú fram í fyrsta sinn.
Miðflokkurinn er flokkur með djúpar rætur á miðju stjórnmálanna. Flokkur fyrir skynsamt fólk með skýra sýn á grundvallarmál samfélagsins. Miðflokkurinn er flokkur sem veitt getur stöðugleika og staðið vörð um hefðbundin grunngildi en um leið verið flokkur hugmyndaauðgi og framfara. Flokkur sem leitar til þeirra sem best þekkja til á hverju sviði og styður góðar hugmyndir sama hvaðan þær koma. Miðflokkurinn vill halda áfram því starfi sem skilaði sér í hraðasta efnahagslega viðsnúningi nokkurrar þjóðar í seinni tíð og skila ávinningnum til þeirra sem eiga hann með réttu, almennings á Íslandi.
Miðflokkurinn ætlar að styrkja á ný heilsugæsluþjónustu og sérfræðilækningar utan höfuðborgarsvæðisins. Miðflokknum finnst það sem dæmi óboðlegt að öryggi Eyjamanna sé stefnt í hættu vegna niðurskurðar á fjármagni til rekstrar Heibrigðisstofnunar Vestmannaeyja.
Miðflokkurinn ætlar að gera heildaráætlun fyrir uppbyggingu á samgöngum í öllum landshlutum. Nauðsynlegt er að taka á forgangsmálum á svæðum sem hafa beðið lengi eins og tryggar sjósamgöngur til Vestmannaeyja. Miðflokkurinn telur að besta lausnin í dag hvað varðar sjósamgöngur til eyja, felist í því að Vestmannaeyjabær taki yfir rekstur ferjusiglinga á milli lands og Eyja. Ef að Vestmannaeyjabær er sammála um að sú lausn sé sú besta þá er ekkert því til fyrirstöðu að framkvæma hana.
Miðflokkurinn er í stakk búinn til að vinna að fyrrnefndum málum af krafti og vera vélin í ríkisstjórnarsamstarfi. Til þess að svo megi vera þá þurfum við sterkt umboð frá kjósendum til stjórnarmyndunarviðræðna.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins

Nýjustu fréttir

Andrea, Sandra og Díana í landsliðshópi Arnars
Látum rannsóknirnar vísa okkur veginn
Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.