Sigtryggur Daði áfram hjá ÍBV
Eyja 3L2A7572
Sigtryggur Daði Rúnarsson í leik með ÍBV. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Sigtryggur Daði Rúnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild ÍBV. Félagið greindi frá tíðindunum í dag.

Sigtryggur Daði, eða Siddi eins og hann er jafnan kallaður, hefur leikið með ÍBV frá haustinu 2020 og er einn reynslumesti leikmaður liðsins. Hann hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu undanfarin ár og varð meðal annars Íslandsmeistari með ÍBV vorið 2023.

„Við erum glöð að halda Sidda áfram innan raða ÍBV og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildarinnar.

Nýjustu fréttir

Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.