Sigtryggur Daði Rúnarsson er á leiðinni til austurríska liðsins Alpla Hard. Erlingur Richardsson staðfesti þetta í samtali við Seinni bylgjuna á Stöð2sport að loknum leik Aftureldingar og ÍBV í Olísdeildinni í gær.
Erlingur sagði Sigtrygg Daða vera lánaðan til austurríska liðsins til ársloka og verða tilbúin í slaginn með liðinu í riðlakeppni Evrópudeildarinnar sem hefst á þriðjudaginn. Erlingur sagðist ennfremur ekki eiga von á öðru en að Sigtryggur Daði snúi til baka til Vestmannaeyja í upphafi nýs árs. Hannes Jón Jónsson þjálfari Alpla Hard. Þess má geta að Hannes lék með ÍBV upp úr aldamótum.
Sigtryggur Daði er á sínu þriðja keppnistímabili með ÍBV. Hann er 26 ára gamall og hefur leikið með þýsku liðunum EHV Aue, Balingen-Weilstetten og Lübeck-Schwartau. Apla Hard er í efsta sæti austurrísku 1. deildarinnar með 13 stig eftir sjö leiki.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.