Sigurbergur ráðinn tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Sigurbergur Sveinsson hefur verið ráðinn tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar. Mynd/vestmannaeyjar.is

Vestmannaeyjabær hefur ráðið Sigurberg Sveinsson í starf tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúa. Átta umsóknir bárust um starfið en ein þeirra var dregin til baka.

Í tilkynningu frá bænum kemur fram að ráðningarferlið hafi falið í sér mat á umsóknargögnum, starfsviðtöl og upplýsingaöflun frá umsagnaraðilum. Niðurstaða heildarmats bæjarins hafi verið að Sigurbergur væri hæfastur umsækjenda til að gegna starfinu.

Við matið var meðal annars litið til menntunar, starfs- og stjórnunarreynslu, þekkingar á íþróttastarfi, leiðtogahæfni og samskipta- og samstarfshæfni. Þá var tekið mið af frammistöðu í viðtali og umsögnum.

Að sögn bæjarins fellur samspil fagmenntunar Sigurbergs, reynslu hans úr íþróttum og stjórnun, samskiptafærni og framtíðarsýnar vel að þeim fjölþættu verkefnum sem starfinu fylgja. Sérstaklega er einnig vísað til hæfni hans til að leiða umbóta- og þróunarstarf.

Vestmannaeyjabær óskar Sigurbergi velfarnaðar í starfi og kveðst hlakka til áframhaldandi uppbyggingar á sviði tómstunda-, íþrótta- og forvarnamála.

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.