Sigurður Arnar Magnússon ráðinn til Laxeyjar
„Laxey hefur ráðið Sigurð Arnar Magnússon í starf verkefnastjóra á framkvæmdasviði. Sigurður Arnar, sem er uppalinn í Vestmannaeyjum, lauk nýverið MS-gráðu í iðnaðar- og kerfisverkfræði frá The Ohio State University með áherslu á aðfangakeðjustjórnun og framleiðslukerfi,“ segir í frétt á Fésbókarsíðu Laxeyjar.
„Hann hefur reynslu af verkefnastjórnun, ferlagreiningu og hefur unnið að þróun stafrænna lausna. Með góða skipulagshæfni og færni í teymisvinnu mun Sigurður Arnar gegna mikilvægu hlutverki í uppbyggingu Laxey. Hann hefur einnig í gegnum íþróttir og störf sín öðlast dýrmæta reynslu af forystu og samvinnu.
Sigurður Arnar hefur störf hjá Laxey í næstu viku og við óskum honum velfarnaðar í nýju starfi!“

Nýjustu fréttir

Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.