Sigurður Arnar Magnússon stigahæsti nýliðinn

Ný alþjóðleg skákstig komu út í dag, 1. apríl. Hjörvar Steinn Grétarsson er stigahæsti skákmaður landsins. Lítið er um reiknuð mót nú vegna Covid-19. Sigurður Arnar Magnússon hjá Taflfélagi Vestmannaeyja er stigahæstur nýliða og Matthías Björgvin Kjartansson hækkar mest frá mars-listanum.

Litlar breytingar eru á listanum nú vegna samkomubannsins. Hjörvar Steinn Grétarsson (2579) er langstigahæsti skákmaður landsins. Í næstu sætum eru Hannes Hlífar Stefánsson (2542) og Jóhann Hjartarson (2525).

100 stigahæstu virku skákmenn landsins. 

Tveir nýliðar eru á listanum nú. Annars vegar Sigurður A. Magnússon (1579) og hins vegar Ólafur Fannar Pétursson (1049).

Matthías Björgvin Kjartansson (+112) hækkar mest frá mars-listanum. Í næstu sætum eru Einar Dagur Brynjarsson (+54) og Guðrún Fanney Briem (+42).

Nýliðar og mestu hækkanir

skak.is

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.