Sigurður Ingi: Kærar þakkir
Nýliðin kosningabarátta var stutt og snörp sem var að mörgu leyti mjög gott. Baráttan var gefandi og skemmtileg allt fram á síðustu stundu. �?g er gríðarlega þakklátur fyrir þann stuðning og traust sem kjósendur hafa sýnt okkar öflugu frambjóðendum. Á bak við slíkan sigur liggur ómæld og óeigingjörn vinna frá sterku baklandi sem vann nótt sem dag að því að styrkja og treysta kjarnann. Á brattann var að sækja allt fram á síðustu stundu en ómetanleg er sú mikla samstaða sem varð til meðal okkar, alls staðar á landinu. �?að er ekki sjálfgefið að slík samvinna og samkennd verði til svona skömmum tíma.
Uppbygging er hafin
�?g vil þakka öllum þeim sem lögðu fram óeigingjarna vinnu og settu svip sinn á kosningabaráttuna, en hún var fyrsta skrefið í þeirri uppbyggingu sem framundan er hjá flokknum. Hvort sem verkefnin voru að hringja og tala við fólk, skipuleggja og taka þátt í viðburðum, taka á móti fólki á kosningaskrifstofunni eða baka kökur, þá er hvert og eitt þeirra mikilvægt og styrkir liðsheildina.
�?á vil ég þakka fyrir góðar móttökur frá öllum þeim sem tóku á móti okkar frambjóðendum og sýndu málefnum okkar áhuga.
�?að var einkar ánægjulegt að sjá hve mikið af nýju og kraftmiklu fólki bættist við í okkar góða hóp, sérstaklega ungt fólk. �?ví vil ég þakka skýrri málefnalegri sýn.
Ganga þarf rösklega til verks. Leysa þarf húsnæðismálin fyrir unga jafnt sem aldna, efla heilbrigðismálin, menntamálin og samgöngur vítt og breitt um landið. Við munum fylgja málefnum okkar eftir af miklum krafti og leggja okkar af mörkum til stöðugs stjórnarfars og bættra lífskjara um allt land.
Samhliða málefnalegum áherslum þá er krafa kjósenda okkar um að stjórnmálamenn axli meiri ábyrgð. Menn þurfa að þora að treysta, finna leiðir í erfiðum málum og vinna saman af heiðarleika. Hlutverk okkar stjórnmálamanna er jafnframt að hlusta, skilja og virða. �?annig öðlumst við traust. Getum við ekki öll verið sammála um það?
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.

Nýjustu fréttir

Andrea, Sandra og Díana í landsliðshópi Arnars
Látum rannsóknirnar vísa okkur veginn
Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.