Sigurlaug Vilbergsdóttir ráðin ráðgjafaþroskaþjálfi hjá Vestmannaeyjabæ
Vestmannaeyjabær hefur ráðið Sigurlaugu Vilbergsdóttur í stöðu ráðgjafaþroskaþjálfa. Sigurlaug er þroskaþjálfi með diplomu í hugrænni alferlismeðferð og starfaði áður sem sérfræðingur og ráðgjafi á Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins, segir í tilkynningu frá bænum.
Sigurlaug tekur við starfi Guðbjargar Guðmundsdóttur þroskaþjálfa sem hefur starfað í fjölda ára innan málaflokks fatlaðs fólks áður á Leikfangasafni Vestmannaeyja og síðar sem ráðgjafaþroskaþjálfi fyrir börn á leikskólaaldri. �?að er eftirsjá af Guðbjörgu sem býr yfir mikilli reynslu og faglegri þekkingu sem nýst hefur fötluðu fólki í Vestmannaeyjum. Guðbjörg hefur verið ötull talsmaður fatlaðs fólks og haft mikil áhrif að móta þjónustu sveitarfélagsins.
Guðbjörgu er þakkað gott og ljúft samtarf í gegnum árin og óskað velfarnaðar í framtíðinni. Sigurlaug er á sama tíma boðin velkomin í starf ráðgjafaþroskaþjálfa hjá Vestmannaeyjabæ. Ráðgjafaþroskaþjálfi mun hefja störf að fullu í sumar.

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.