Síld farin að hrygna suður af landinu
Bergey 20251009 102412
Bergey á leið úr höfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði 60 tonnum í Grindavík á mánudagsmorgun og aftur 60 tonnum í Eyjum í gær. Rætt er stuttlega við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra á vef Síldarvinnslunnar.

„Það er í sjálfu sér ekki mikið að frétta. Við lönduðum á mánudaginn vegna þess að það vantaði fisk í vinnsluna hjá Vísi. Aflinn þá var blandaður; þorskur, ýsa ufsi og fleira. Veitt var á Vík, Pétursey, Mýragrunni og á Höfðanum. Haldið var til veiða á ný strax að löndun lokinni og landað í Eyjum í gærmorgun. Þá var aflinn mest ýsa sem fékkst á Pétursey. Síðustu daga hefur orðið vart við töluvert af síld á þeim slóðum. Síldin er farin að hrygna og sækir ýsan í hrognin enda var mest af ýsu í aflanum en einnig þorskur og ufsi. Seinni túrinn hófst með sannkölluðu vetrarveðri, suðaustan brælu af verstu gerð. Þetta voru 25 metrar eða svo,” sagði Ragnar Waage.

Bergey heldur til veiða á ný í fyrramálið, segir jafnframt í fréttinni.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.