Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem fram fer laugardaginn 22. ágúst, ræða Eyjafréttir við nokkra hlaupara frá Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár.
Síðastur í röðinni er Sindri Georgsson, sem ætlar að hlaupa 21,1 kílómetra. Hann hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls, sem að þessu sinni styrkir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur.
Aldur? Verð 35 ára í október.
Fjölskylda? Giftur Elínu Söndru og eigum við þrjú börn Söndru Dís, Svein Georg og Agnar Smára.
Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Friðrik dró mig á æfingu í nóvember 2024 og þá var ekki aftur snúið.
Uppáhalds vegalengd sem þú hleypur? Mér finnst 10-20 kílómetra hlaup skemmtilegust. Sérstaklega ef þau eru utanvega og á fjöllum.
Hvar er skemmtilegast að hlaupa? Ég hef nánast eingöngu hlaupið í Vestmannaeyjum fyrir utan keppnishlaup upp á landi. Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum í góðu veðri.
Hvenær sólarhrings er best að hlaupa? Mér finnst best að hlaupa í kringum hádegið
Besti hlaupafélaginn? Friðrik Benediktsson verður að fá að eiga þann titil. Hann dró mig út í þessi hlaup og heldur manni á tánum alla daga.
Uppáhalds hlaupaskór og fatnaður? Ég er mikið í Adidas skóm þessa dagana. Nota Adidas adizero evo sl í götuhalup og Adidas terrax í utanvegahlaupin. Annars eru það bara góðar stuttbuxur og bolur.
Hvað er ómissandi á hlaupaæfingu? Það er klárlega hlaupafélagarnir í Eyjaskokk.
Hvernig nærir þú þig kvöldinu áður og morguninn fyrir keppnishlaup? Ég reyni að borða mikið af kolvetnum fyrir hlaup. Yfirleitt er það pizza kvöldið áður og svo byrja ég morguninn á því að fá mér fjórar ristaðar brauðsneiðar með smjöri og banana og drekk kolvetna drykk með því.
Bestu tímar í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni? Ég á bara skráðann tíma í keppni í 10 km af þessum vegalengdum og fór ég það á 36:03. Er að fara í mitt fyrsta hálfmaraþon í keppni í Reykjavíkurmaraþoninu, en samkvæmt strava á ég best 1:31:53. Minn besti 5 km tími skv. Strava er 17:41.
Hvað hleypur þú mikið í hverri viku? Ég reyni að hlaupa ca. 40-60 km.
Hleypur þú eftir æfingaáætlun? Já ég geri það, Frikki sér um að útfæra það fyrir mig.
Hvaða vegalengd tekur þú í Reykjavíkurmaraþoninu? Ég ætla mér að hlaupa hálft maraþon 22.1 km.
Ertu með einhver markmið fyrir hlaupið? Draumurinn er að vera sem næst 1:20:00.
Hvernig hefur undirbúningurinn gengið? Hann hefur bara gengið mjög vel.
Ætlar þú að hlaupa fyrir eitthvað góðgerðarfélag? Af hverju? Já, ég mun hlaupa fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls sem er með áheita söfnun fyrir Guðbjörgu Sillu.
Þegar ég heyrði af þessari söfnun langaði mér að taka þátt í henni til að leggja mitt af mörkum við að aðstoða Guðbjörgu Sillu og hennar fjölskyldu.
Lýstu þér sem hlauparar í einni setningu? Áhuga hlaupari, sem hefur gaman að ögra sjálfum sér og sjá hversu langt ég get komist.
Eitthvað að lokum? Hvet alla sem hafa tök á að styrkja málefnið. Hægt að finna allar upplýsingar á Minningarsjóð Gunnars Karls á Facebook.
Gangi þér vel í þinni baráttu Guðbjörg Silla ❤️
Hægt er að heita á Sindra með því að smella hér.