Sindri VE 60 farinn til veiða fyrir Vinnslustöðina
Sindri VE
Páll Pálsson ÍS-102 hefur skipt um lit og nafn og heitir nú Sindri VE-60. Vinnslustöðin keypti togarann af HG í Hnífsdal og er honum ætlað að fylla skarð Gullbergs VE sem var afhent nýjum eigendum um mánaðarmótin.
Vinnslustöðin er með nýjan ísfisktogara, Breka VE, í smíðum í Kína en dregist hefur að ljúka frágangi og afhenda skipið og systurskip þess, Pál Pálsson ÍS, sem HG í Hnífsdal á. Reiknað er nú með að Breki og Páll komi til heimahafna í haust og Sindri VE brúar líka bil sem myndast hjá VSV vegna tafa á heimkomu Breka.
Skipsnafnið Sindri á sér langa og farsæla sögu hjá Vinnslustöðinni og fyrirtækjum henni tengdri. Fiskiðjan gerði út bát með þessu nafni frá sjötta áratugnum til þess áttunda en frá 1977 átti Fiskimjölsverksmiðjan og síðar Vinnslustöðin togara sem Sindri hét og gerði út fram á tíunda áratug síðustu aldar.
Af vsv.is en myndina tók �?skar Pétur þegar Sindri hélt í sína fyrstu veiðiferð fyrir Vinnslustööðina.

Nýjustu fréttir

Spegilmyndir í morgunblíðunni
Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.