Sísí Lára í lyfjagjöf við liðagigt.
Sig­ríður Lára Garðars­dótt­ir, landsliðskona í knatt­spyrnu, hef­ur greinst með liðagigt. Hún er byrjuð í lyfjameðferð sem ætl­un­in er að taki 3 vik­ur, og er vongóð um að eft­ir það muni þessi sjúk­dóm­ur ekki hafa áhrif á knatt­spyrnu­fer­il­inn.www.mbl.is greindi frá þessu fyrst.
Sig­ríður Lára, sem lék 11 A-lands­leiki á síðasta ári og þar á meðal tvo leiki á EM í Hollandi, gat vegna veik­ind­anna ekki farið með ís­lenska landsliðinu til Spán­ar þar sem liðið mætti Nor­egi í vináttu­lands­leik í vik­unni. Hún seg­ist fyrst hafa farið að finna fyr­ir ein­kenn­um liðagigt­ar­inn­ar í sept­em­ber á síðasta ári, og þau hafi svo auk­ist síðustu mánuði:
�??�?etta lýs­ir sér þannig að það er stíf­leiki og mikl­ar bólg­ur í liðum lík­am­ans. �?etta var eig­in­lega komið í liði um all­an lík­ama hjá mér; í mjöðminni, hnjám, hönd­um og svona. �?g var orðin svo slæm fyr­ir þessa ferð til Spán­ar að ég gat ekk­ert farið með,�?? sagði Sig­ríður Lára, eða Sísí eins og hún er jafn­an kölluð, við Morg­un­blaðið í gær.
�??�?g er með mjög góðan lækni og er kom­in í lyfjameðferð. Fyrsta lyfja­gjöf­in var í gær [í fyrra­dag] og ég er bara ótrú­lega góð eft­ir hana. Von­andi get ég bara farið aft­ur út á völl­inn sem fyrst. �?g mun fara í lyfja­gjöf viku­lega núna næstu þrjár vik­urn­ar, en svo skilst mér að ég þurfi að mæta í lyfja­gjöf á átta vikna fresti eig­in­lega til æviloka, til að halda þessu niðri,�?? sagði Sig­ríður Lára.

Nýjustu fréttir

Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.