Sjá fram á gjaldþrot
Hjónin Styrmir Gíslason og Hólm­fríður Á. Sigurpálsdóttir höfðu búið í húsinu Sólvangi við Kirkjuveg í sex ár þegar þau ákváðu að ráðast í endurbætur á þaki og skipta um klæðningu á húsinu. Þau réðu menn í verkið og þegar þeir hófu að rífa af þakinu kom í ljós að veggjatítla hafði búið um sig í húsinu og það því óíbúðarhæft. Endurbætur og lagfæringar á húsinu svara ekki kostnaði og húsið verður því rifið. Eigendurnir standa eftir slyppir og snauðir enda er eign þeirra í húsinu að engu orðin og þeir sitja eftir með skuldir. Rætt er við þau í vikublaðinu Fréttum sem kemur út í dag.

Nýjustu fréttir

Mikilvæg stig í húfi hjá Eyjamönnum í Keflavík
Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.