Sjáðu myndirnar frá Goslokunum
Goslokahátíðin 2014 tókst afar vel til þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi aðeins verið að stríða Eyjamönnum og gestum þeirra. Samkvæmt upplýsingum hjá lögreglu fóru hátíðahöldin að langmestu leyti vel fram og engin alvarleg mál komu upp á hátíðinni. Elliði Vignisson, bæjarstjóri ritaði grein sem birtist í Eyjafréttum en þar þakkar hann m.a. öllum þeim fjölmörgu sem leggja hönd á plóg við að gera Goslokahátíðina að veruleika. �??Hátíð sem þessi verður hins vegar ekki til úr engu. Á bak við hana er mikill fjöldi heimamanna sem gefur vinnu sína, lánar eigur sínar og leggur margs konar lykkjur á leið sína til að hægt sé að gera þennan viðburð að veruleika. Sérstaklega reyndi á slíkt núna um helgina þegar slæmt veður setti strik í reikninginn. �?á voru það velviljaðir Eyjamenn sem komu til bjargar og sáu til þess að ekki færi illa. Á sama hátt hafa eigendur króa, veitingamenn, fyrirtækjaeigendur, listamenn, starfsmenn Vestmanna-eyjabæjar og fleiri verið ósparir á aðstoð,�?? skrifar Elliði og bætti því við að það væru ómetanleg forréttindi fyrir bæjarfélagið að hafa aðgang að fólki sem bæði leggur á sig vinnu og lánar eigur sínar af heilum hug og ætlast ekki til neins á móti.
Dagskrá hátíðarinnar var með fjölbreyttara móti en fyrsti dagskrárliðurinn var á fimmtudegi og sá síðasti á sunnudagskvöld. Haldnar voru 5 myndlistasýningar, 16 tónleikar eða tónlistarviðburðir, 2 íþróttaviðburðir, barnaskemmtun, leiksýning, tískusýning, ljósmyndasýning, söguskoðun, fjallaferðir og náttúruskoðun, bryggjuveiðimót og útimessa eins og fram kemur í grein bæjarstjórans. �??�?á voru veitingahúsin með alls konar tilboð og nýbreytni í sinni þjónustu og Sparisjóður Vestmannaeyja hélt sinn árlega Sparisjóðsdag, auk ýmissa annarra uppákoma. �?átttaka í öllum þessum viðburðum var afar góð enda mikið fjölmenni gesta í bænum í tilefni goslokahátíðarinnar.�??
Ljósmyndarar Eyjafrétta voru að sjálfsögðu á staðnum og mynduðu það sem fyrir augu bar.

Nýjustu fréttir

Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  
Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings
Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa
Ísfélagið á vörusýningu á Englandi
Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.