Sjaldgæf meiðsli

Gunnar Heiðar kom til Hannover frá Halmstad í Svíþjóð í sumar og fór rólega af stað. Var á varamannabekknum og fékk aðeins að spreyta sig í einum leik í fyrstu umferðunum. Í kjölfarið meiddist hann í nára og fór í aðgerð, og var orðinn leikfær á ný í byrjun nóvember. �?Aðgerðin tókst mjög vel og ég var frá í þær 4�?5 vikur sem ráð var fyrir gert, og var tilbúinn í leik gegn Stuttgart 12. nóvember. �?ar kom ég inn á, spilaði í 15 mínútur og náði mér vel á strik. Daginn eftir lenti ég í návígi við ungan leikmann á æfingu hjá Hannover og hann sparkaði í hnéð á mér. �?g fann fyrir verkjum næstu daga, hélt áfram, en var orðinn mjög slæmur á þriðja degi og lét þá læknana okkar líta á þetta. �?g var sendur í myndatöku og þá komu í ljós beinbólgur undir hnéskelinni,�? sagði Gunnar Heiðar við Morgunblaðið í gær.

Alls konar tilraunir gerðar á mér

�?�?etta eru víst einhver mjög sjaldgæf meiðsli og menn hérna vita ekki almennilega hvernig á að meðhöndla þetta. �?að hafa verið gerðar alls konar tilraunir á mér og ég er heldur skárri núna, en það veit enginn hvenær ég verð orðinn heill heilsu.�?
Hannover á eftir að spila tvo deildarleiki og einn bikarleik fyrir jól og síðan er frí fram yfir áramótin. �?�?g vona að þessi tími dugi mér til að komast í lag en þetta hefur verið ansi erfiður tími, það liggur við að maður sé lagstur í þunglyndi yfir þessu öllu saman. �?etta hefur verið sagan endalausa síðan ég kom hingað til �?ýskalands. Ef þetta gengur ekki á næstunni fer ég heim til Íslands og reyni að fá meina minna bót þar,�? sagði Gunnar Heiðar.

Mikið breyst með nýjum þjálfara

Hannover byrjaði tímabilið illa og var í fallsæti framan af vetri. Eftir þjálfaraskipti, þar sem Dieter Hecking tók við af Peter Neururer, hefur liðið tekið vel við sér og unnið síðustu þrjá leiki sína, lagði Energie Cottbus 1:0 á útivelli á laugardaginn og er nú komið upp í miðja deild. �?�?etta er allt annað og það hefur mikið breyst með nýjum þjálfara. Hann hefur líka verið mjög jákvæður í minn garð, fylgst mjög náið með mínum meiðslum og virðist hafa mikla trú á mér, svo ég vona það besta,�? sagði Gunnar Heiðar �?orvaldsson.

Morgunblaðið greindi frá.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.