Sjálfstæðismenn myndu tapa meirihlutanum
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, næði ekki kjöri í bæjarstjórn ef kosið yrði nú. �?etta sýna niðurstöður nýrrar skoð­anakönnunar sem Fréttablaðið og frettabladid.is hafa gert.
Samkvæmt könnuninni fengi Sjálfstæðisflokkurinn rúm 41 pró­sent. Nýtt framboð, sem heitir Fyrir Heimaey, fengi tæp 32 prósent. �?á fengi Eyjalistinn rúm 25 prósent.
Fyrir Heimaey er klofningsframboð út úr Sjálfstæðisflokknum, en Eyjalistinn er sameinað framboð fólks úr Bjartri framtíð, Framsóknarflokki, Samfylkingu, Vinstri hreyfingunni �?? grænu framboði og óflokksbundnum að auki.
Kosið verður um sjö bæjarfulltrúa í Vestmannaeyjum. Ef niðurstaða kosninga yrði í takti við þá skoðanakönnun sem Fréttablaðið og frettabladid.is gerðu myndi Sjálfstæðisflokkurinn fá kjörna þrjá menn en Fyrir Heimaey og Eyjalistinn myndu fá tvo menn hvort framboð. Lestu allt um könnunina hérna.
Í gær fóru Eyjafrettir af stað með skoðanakönnun, hægt er að taka þátt í henni hérna.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.