Sjáumst syngjandi í kirkjunni okkar

Það verður mikið fjör í Landakirkju í dag þegar fjórir kórar mæta til leiks og bjóða kirkjugestum að syngja með í þekktum jólalögum og jólasálmum.  Litlu lærisveinarnir, Kór Landakirkju, Karlakór Vestmannaeyja og Kvennkór Vestmannaeyja leiða og styðja söng.

Á Fésbókarsíðu Landakirkju segir:  Hefur þig langað til að syngja jólalögin en tækifærin hafa verið að skornum skammti? – Hefur þig langað að njóta þess að syngja eða hlusta á klassísku jólalögin? – Hefur þig langað til þess að heyra jólalögin sungin með gleðiraust og helgum hljóm?

Þá er Jólalaga Sing-along einmitt málið fyrir þig næstkomandi sunnudag kl. 13.00.  Undanfarin ár höfum við staðið fyrir sannkallaðri jólalagasöngstund rétt fyrir jól. Í ár verður engin breyting á og verður hið svokallaða „Jólalaga Sing-along næstkomandi sunnudag kl. 13.00.

Það er skemmtilegt og uppbyggjandi að koma saman rétt fyrir jól og syngja jólalögin ásamt öllum góðu kórunum okkar. Tækifærum til að syngja jólalögin hefur fækkað umtalsvert á undanförnum árum og því er þetta kjörin stund til að eiga gleðilega og hátíðlega söngstund saman.

Litlu lærisveinarnir, Kór Landakirkju, Karlakór Vestmannaeyja og Kvennakór Vestmannaeyja munu jafnframt syngja jólalög úr sinni efnisskrá þannig að þetta verður heilmikil söngstund fyrir alla

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.