Karlalið ÍBV í handbolta mátti sætta sig við sjö marka tap þegar liðið heimsótti Aftureldingu í 10. umferð Olís deildar karla í kvöld. Lokatölur urðu 34-27, heimamönnum í Mosfellsbæ í vil.
Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins og var staðan 5-5 eftir rúmar ellefu mínútur. Þá náðu heimamenn undirtökunum og komust í 9-6 eftir stundarfjórðung. Eyjamenn svöruðu með góðum kafla og jöfnuðu metin í 10-10.
Afturelding náði þó aftur forystunni og jók muninn jafnt og þétt það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 19-13, heimamönnum í vil.
Afturelding hélt áfram að hafa yfirhöndina í síðari hálfleik og hélt góðri forystu út leikinn. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka munaði tíu mörkum á liðunum. ÍBV náði að minnka muninn undir lokin en það dugði ekki til og lokatölur urðu 34-27.
Dagur Arnarsson átti góðan leik í liði ÍBV og var markahæstur með tíu mörk. Petar Jokanovic varði sjö skot í marki Eyjamanna.
Eftir tíu umferðir situr ÍBV í 6. sæti deildarinnar með tíu stig. Afturelding er í 3. sæti með 13 stig.
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 10 mörk, Atli Steinn Arnarson 7, Jason Stefánsson 2, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Sveinn José Rivera 2, Andri Magnússon 1, Einar Bent Bjarnason 1, Gary Emanuel Phillips 1, Haukur Leó Magnússon 1.
Úrslit kvöldsins í Olís deild karla:
FH 35 – 31 Valur
Haukar 35 – 26 Þór