Sjómannadagurinn: Dagskrá dagsins
Sjómannafjör
Á leið í sjóinn! Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Dagskrá dagsins hefst klukkan 11.00 með dorgveiðikeppni. Á sama tíma opnar bílasýning Toyota og Lexus í Akóges. Eftir hádegi er svo sjómannafjör á Vigtartorgi og um kvöldið færist fjörið upp í Höll.

Hér að neðan má sjá dagskrá dagsins.

11.00 Dorgveiðikeppni SJÓVE og Jötuns á Nausthamarsbryggju. Vegleg verðlaun, stærsti fiskur, flestir fiskar o.fl.

11-15 Akóges: Bílasýning Toyota

13.00 Sjómannafjör á Vigtartorgi
Séra Viðar blessar daginn. Koddaslagur, tuðru- kvartmíla, lokahlaup, sjómannaþraut, foosball völlur á staðnum, þurrkoddaslagur, sjóstakkasund*. Blaðrarinn mætir á svæðið. Hoppukastalar. ÍBV verður með poppkorn, Kjörís gefur ís. Leikfélagið skemmtir. Andlitsmálun í boði TM.

20.00 AFTUR TIL 2000- Sjómannadagsskemmtun
Tónlistin sem einkenndi síðustu aldamót mun ráða ríkjum. Fram koma: Beggi í Sóldögg, Einar Ágúst, Jónsi í Í svörtum fötum og Eyjaraddirnar Haffi úr MEMM og Una Þorvalds. Öll syngja þau við takt Bigga Nielsen úr Landi og sonum ásamt Gosunum. Veislustjóri verður Simmi Vill. Glæsilegt hlaðborð Einsa kalda ásamt skemmtun. Áhugasamir hafi samband við Höllina á hollinivestmannaeyjum@gmail.com.

23.00 Sjómannadagsball í Höllinni
Beggi í Sóldögg, Einar Ágúst, Jónsi í Í svörtum fötum og Eyjaraddirnar Haffi úr MEMM og Una Þorvalds ásamt Gosunum.

Nýjustu fréttir

Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.