Sjómannadagurinn - Mikil aðsókn í góðu veðri
Kynnarnir, Óttar og Sigurður með séra Guðmundi Erni.

Gott veður, sól og blíða settu svip sinn á hátíðardagskrá dagsins sem hófst í morgun með dorgveiðikeppni SJÓVE og Jötuns á Nausthamarsbryggju. Þátttaka var góð og vegleg verðlaun í boði fyrir m.a. stærsta fiskinn og flesta fiska.

Sjómannafjör var á Vigtartorgi eftir hádegi þar sem séra Guðmundur Örn blessaði daginn. Þá tók við kappróður á kajökum, koddaslagur á sjó og landi, tuðru kvartmíla, sjóstakkasund, lokahlaup og sjómannaþraut. Foosball völlur var á staðnum og líka  blaðrarinn og hoppukastalar. ÍBV var með poppkorn, Kjörís gefur ís og Leikfélagið skemmti og andlitsmálun var í boði TM.

Sjaldan hafa fleiri sést á bryggjunni enda veður eins og best verður á kosið.

Klukkan 20.00 er sjómannadagsskemmtun í Höllinni.  Þar  mun tónlistin sem einkenndi síðustu aldamót ráða ríkjum. Fram koma Beggi í Sóldögg, Einar Ágúst, Jónsi í Í svörtum fötum og Eyjaraddirnar Haffi úr MEMM og Una Þorvalds. Öll syngja þau við takt Bigga Nielsen úr Landi og sonum ásamt Gosunum.

Veislustjóri verður Simmi Vill og boðið er upp á glæsilegt hlaðborð að hætti Einsa kalda.

Myndir Óskar Pétur.

Nýjustu fréttir

Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.