Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum
Sextíu síður af fjölbreyttu efni

Nýtt tölublað Eyjafrétta, sjötta blað ársins, er komið út. Að þessu sinni er blaðið að stórum hluta helgað sjómannadeginum, með fjölbreyttu efni um sjómennsku, útgerð og mannlífið í Vestmannaeyjum. Á forsíðu blaðsins eru sjómennirnir Óttar Steingrímsson og Friðrik Ásmundsson, en blaðið kemur út í aðdraganda sjómannadagshelgarinnar.

Meðal efnis í blaðinu er viðtal við Jónínu Björk Hjörleifsdóttur, Jóný, sem nýverið var valin bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026. Þar segir hún frá listsköpun sinni, fjölskyldunni og því hvaðan innblásturinn kemur.

Einnig er fjallað um ný drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Surtsey þar sem lagðar eru til auknar takmarkanir á umferð um friðlandið vegna verndunar lífríkisins.

Í blaðinu er ítarleg umfjöllun um niðurstöðu sveitarstjórnarkosninganna í Vestmannaeyjum þar sem rætt er við bæjarstjóra og oddvita allra framboða um verkefnin framundan og framtíðarsýn fyrir samfélagið.

Auk þess má finna viðtöl við sjómannskonur sem segja frá kostum og göllum þess að eiga maka til sjós, myndasyrpu frá sjómannadagshelginni í fyrra og sérstaka umfjöllun um sögu grænu Ísleifsbátanna sem hafa markað spor í sögu útgerðar í Eyjum.

Þá er í blaðinu einnig að finna mannlífsviðtöl, söguþætti, íþróttir, myndir og fjölbreytt efni úr samfélaginu. Meðal stærri viðtala eru umfjallanir um hjónin Heimi Hauksson og Særúnu Vignisdóttur sem heilluðust af Vestmannaeyjum og festu hér kaup á húsi, auk viðtala sem tengjast sjómannadeginum og sögu sjávarútvegsins.

Blaðið, sem telur 60 blaðsíður, er komið í dreifingu til áskrifenda og jafnframt aðgengilegt í rafrænni útgáfu hér á vef Eyjafrétta. Einnig er það til sölu í lausasölu í Tvistinum og á Kletti. Þeir sem vilja gerast áskrifendur geta skráð sig hér.

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.