Sjóræningjar á uppskeruhátíð sumarlesturs
Hinn 5. júní sl. hófst sumarlestur Bókasafnsins með því að Dórótea úr Galdrakarlinum í Oz og Mary Poppins opnuðu sýn inní töfraheim klassískra bókmennta sem var þema sumarsins. Barnadeildin var lögð undir Galdrakarlinn í Oz, Bangsímon, Lísu í Undralandi, Pétur Pan  og aðrar hetjur eilífrar æsku. Í gær, 13. september, lauk sumarlestrinum formlega með uppskeruhátíð þar sem sjóræningjarnir Kútur og Grimmur tóku á móti um 70 börnum. Búið var að skreyta Bókasafnið að sjóræningjasið og setja lepp fyrir annað auga þeirra starfsmanna sem voru í afgreiðslunni. Boðið var upp á þá þrekraun að ganga plankann og farið í fjársjóðsleit. Alls voru 88 börn skráð í sumarlestur Bókasafnsins að þessu sinni og lásu þau samtals 215 bækur. Fyrir hverja bók sem lesin var skrifuðu börnin miða þar sem þau gáfu bókinni einkunn, rituðu nafn sitt undir og skiluðu á safnið. Úr miðunum voru tvö nöfn dregin út á uppskeruhátíðinni og fengu hinir heppnu, Guðjón Ólafsson og Kristján Þorgeir Karlsson, bókagjöf. Dagskránni lauk með því að börnin fundu fjársjóðskistu eina mikla sem reyndist full af nammi sem deilt var út til þátttakenda. Það voru því hávær og glöð börn sem yfirgáfu Bókasafnið þennan daginn. 

 

Nýjustu fréttir

Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
ÍBV sækir FH heim í dag
ÍBV með öruggan sigur á HK
Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.