Sjóuð á hliðarlínunni

Fyrsti leikur Íslands á EM fer fram í dag og hefst bein útsending á RÚV kl. 15:15 frá EM stofunni, en leikurinn hefst kl. 16:00.

Margrét Lára Viðarsdóttir verður ein sérfræðinganna í EM stofunni og svo er systir hennar, Elísa, á vellinum. Það stefnir í spennandi leik.

Guðmunda og Viðar, foreldrar Elísu og Margrétar Láru, eru reynsluboltar í að fylgja börnum sínum eftir á stórmót. Hvernig líst þeim á möguleika Íslands á mótinu nú?
„Með góðri spilamennsku eigum við möguleika á að fara upp úr riðlinum þar sem við erum að fara spila á móti mjög öflugum liðum. Við þurfum að eiga okkar bestu frammistöðu.“ 

Ætla þau að fara út til Englands að sjá leikina?
„Já, við ætlum að fara að sjá riðlakeppnina. þetta er okkar fjórða stórmót í röð, alltaf jafn gaman og við hlökkum mikið til. Við erum orðin ágætla sjóuð í því að vera á hliðarlínunni og fylgja börnunum okkar eftir í þeirra íþróttaiðkun í gegnum tíðina. Við höfum alltaf jafn gaman af þessu en það erfiðasta er að horfa upp á einhvern meiða sig en það er víst partur af íþróttum.“ 

Viljið þið spá fyrir um úrslit?
„Ísland-Belgía (2-1) Ísland-Ítalía (1-1) Ísland-Frakkland (0-3). Við vonum að stelpurnar komi vel stemmdar í leiki og við sem þjóð stöndum þétt við bakið á þeim. Það er alltaf vænlegast til árangurs ef við stöndum öll saman, það smitar jákvæðri orku inn í liði. Áfram Ísland!“ sögðu Guðmunda Bjarnadóttir og Viðar Elíasson. 

Nánari umfjöllun um EM og stelpurnar okkar í nýjasta tölublaði Eyjafrétta sem kom út 6. júlí sl. Blaðið er í lausasölu í Tvistinum, Krónunni og Klettinum. 

Guðmunda og Viðar með hlutaaf barnabörnum sínum á Eldfelli. Mynd úr einkasafni.
Elísa og Margrét Lára eru samrýmdar systur. Mynd úr einkasafni.

Nýjustu fréttir

Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.