Sjúkraflutningar komnir að þolmörkum á Suðurlandi
�??�?að er ljóst að þjónustan er komin að þolmörkum þar sem álagið á mannskapinn er gríðarlegt og þörf á aukningu á mönnum vegna fjölda verkefna,�?? segir Styrmir Sigurðsson, yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Sjúkraflutningamenn höfðu í nógu að snúast um helgina.
Styrmir segir helgina hafa verið mjög annasama en útköllin hafi verið 43 frá föstudegi til sunnudags og dreifst um allt umdæmið. Alvarlegt umferðarslys varð á �?ingskálavegi þar sem ökumaður lést en auk þess fóru sjúkraflutningamenn á Gullfoss þar sem endurlífgun fór fram.
�??Ásamt því þurftum við að sækja sjúkling inn í land vegna bílveltu á Lakavegi,�?? segir Styrmir.
Styrmir segir verkefni sjúkraflutningamanna mjög fjölbreytt og mörg en mikill tími fer í að sinnum daglegum verkefnum í flutningi á sjúklingum milli stofnana og til Reykjavíkur til rannsókna. visir.is greinir frá.

Nýjustu fréttir

Hundrað ára afmæli Jónínu í myndum
Sumarlokanir leikskólanna í Eyjum liggja fyrir
Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.