„Ég er virkilega ánægður að geta nú boðið viðskiptavinum Sannað og skundað-þjónustuna hér í Eyjum,“ segir Ólafur Björgvin Jóhannesson, verslunarstjóri Krónunnar. Frá og með 13. október verður í boði að greiða með appinu í versluninni.
„Varan beint ofan í pokann og út. Hér verður starfsmaður hjá okkur sem býður viðskiptavinum okkar að prófa og kennir þeim að nota appið. Sjálfur er ég með sex mánaða son og hef ekki mikla trú á að hann alist upp við beltakassa í verslunum í framtíðinni,“ segir Ólafur Björgvin sem hefur verið verslunarstjóri í Krónunni í Eyjum síðustu tvö ár.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir þau hjá Krónunni stolt af því að vera fyrst til að kynna þessa verslunarleið hér á landi. „Það er alveg ný upplifun að skanna vörurnar beint í pokann. Þetta er einföld og skemmtileg leið til að versla,“ segir hún.
„Viðskiptavinir okkar spara bæði tíma sinn og fyrirhöfn með appinu. Það er sérlega hentugt þegar skjótast þarf í búðina en við sjáum einnig að þeir sem hafa prófað kjósa þessa leið í ríkari mæli, líka fyrir stóru innkaupin.“ Krónan stefni á að þróa þjónustuna ennfrekar. „Við erum alltaf að leita leiða til að bæta lífsgæði fólks, bæði við innkaupin og í vöruúrvali.“
Ólafur Björgvin segir að hann stefni á að fá fólk til að prófa. „Já, því appið er gargandi snilld sem leitt er að fara á mis við,“ segir Ólafur Björgvin sem er fæddur og uppalinn Eyjamaður og fékk vinnu uppi á landi í starfsþjálfun þegar hann sótti fyrst um verslunarstjórastöðuna hjá Krónunni.
„Ég átti að vera stutt í bænum að læra en sumir eru lengur að læra en aðrir,“ segir hann og hlær enda tvö ár liðin. „Nei, ég átti þar gott líf, kynntist konunni minni sem einnig er af landsbyggðinni eins og ég, en hún er af Króknum. Hún flutti með mér þegar ég svo tók við starfinu sem ég sótti upphaflega um.“
Hægt er að Skanna og skunda með appinu Krónan – Snjallverslun. Viðskiptavinir geta þar skannað vörur beint ofan í pokann um leið og þeir ganga um verslunina, greiða og ganga út. „Það er einfaldlega frábært að þurfa ekki að bíða í röð,“ segir Ólafur Björgvin.
| Hvernig nota ég Skannað og skundað?
Pssst..hér er stutt skýringarmyndband fyrir Skannað og skundað, sem er ný lausn í Snjallverslunar appinu okkar. Verslaðu vörur með því að skanna þær úr hillu og setja beint í körfuna þína, jú eða bara beint í pokann. |
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.