Skipstjóri Herjólfs og kona hans hyggjast kæra

Mannlíf greinir frá því í dag að annar tveggja skipstjóra Herjólfs og eiginkona hans hafa ákveðið að fara í mál við þá sem hafa dreift skjáskoti, sem er af að því er virðist einkasamskiptum á Messenger-spjallforritinu og ætla má að sé á milli eiginkonu skipstjórans og trúnaðarvinkonu hennar. Í skjáskotinu, sem Mannlíf hefur undir höndum, segir eiginkonan að hún og maðurinn hennar séu byrjuð að taka svokallaða míkróskammta af ofskynjunarsveppum á morgnana. Þá kemur einnig fram að eiginmaðurinn sé að fara á sitt fyrsta „ferðalag“ undir handleiðslu manneskju sem er vön slíkum „ferðalögum“. Segir hún trúnaðarvinkonunni að þetta virki þannig að dagurinn verði allur jafnari og þreytan minni.

Fram kemur í frétt Mannlífs að Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður hafi tekið mál hjónanna að sér. Lítur hann málið, að sögn eiginkonu skipstjórans, alvarlegum augum. Aðspurður vildi Sigurður G. ekki tjá sig um málið vegna trúnaðarskyldu við skjólstæðinga sína.

Hér er linkur á frétt Mannlífs í heild sinni: https://www.mannlif.is/frettir/skipstjori-herjolfs-og-kona-hans-hyggjast-kaera-skjaskoti-dreift-i-vestmannaeyjum/

Nýjustu fréttir

Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.