Þrátt fyrir að Heimi Hallgrímssyni hafi gengið nokkuð vel með Írska landsliðið frá því hann tók við, hefur hann sætt þó nokkurri gangrýni en einn háværasti gagnrýnandi hans er fyrrverandi landsliðsmaðurinn Eamon Dunphy, sem skrifar fyrir Irish Mirror. En strax eftir fyrstu tvo leiki Heimis síðasta haust kallaði Dunphy eftir brottrekstri og hefur síðan þá haldið áfram að gagnrýna hann harðlega og furðað sig á af hverju Írland sé með íslenskan tannlækni við stjórnvölinn.
Dunphy vill meina að sá árangur sem náðst hafi sé ekki Heimi að þakka heldur þeim sem voru á undan honum. Aðrir eru þó ekki á sama máli og Dunphy og hefur Kevin Kilbane til dæmis mikla trú á Heimi og vill meina að hann geti vel stýrt Írum alla leið á HM 2026. Það verður gaman að sjá hvað tíminn mun leiða í ljós og hvort Heimi takist að þagga niður í gagnrýnendum sínum. Að sjálfsögðu óskum við hjá Eyjafréttum Heimi góðs gengis og vonum að hann nái að koma liðinu alla leið á HM 2026.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst